• Holdanaut logo

Velkomin ađ Hálsi

Á Hálsi er ýmislegt í boði. Auk þess að stunda hefðbundinn landbúnað þá stundum við ýmsa verktakastarfsemi innan Kjósarinnar. Ef þú ert á höttunum eftir aðstoð í eitthvað verkefni eða vantar möl, mold eða mykju kíktu þá undir hnappinn HÁLSTAK.

 
Við seljum líka nautakjöt og aðrar landbúnaðarafurðir beint frá býli. Hafir þú áhuga á því, þá er hnappur sem stendur á MATARBÚRIÐ eitthvað fyrir þig. Undir þeim hnappi er að finna allar helstu upplýsingar um verð og vöruúrval. Undir hnappnum Fréttir er hægt að sjá hvað er á döfinni.
 
Háls er ekki einn um að framleiða vörur fyrir Matarbúrið. Við erum svo heppin að hafa framleiðendur í Kjós sem eru líka með holdanaut. Fremstur meðal jafningja er Bærinn Sogn. Smelltu hér til að kynna þér málið nánar. Undir hnappnum SAMSTARFSAÐILAR hægra megin á vefsíðunni eru líka upplýsingar um aðra framleiðendur.
 
Það er líka hægt að fá spildu undir sumarhús í landi Háls jafnvel kaupa heilt hús eða leigja, allt um það undir HÁLSTAK.
 
Endilega skoðaðu síðuna, smelltu á hnappana og hafðu óhikað samband ef þér finnst eitthvað vera freistandi.
                                                     Matarbúrið er líka á Facebook
Háls í Kjós|276 Mosfellsbćr|Sími 897-7017|www.hals.is|hals@hals.is
Opnunartími Matarbúrsins Föstudaga, 16:00 - 20:00|Laugardaga og sunnudaga 14:00 - 18:00